Djúpivogur

Djúpivogur er þorp í Djúpavogshreppi sem stendur á Búlandsnesi, milli Berufjarðar og Hamarsfjarðar. Á Djúpavogi voru íbúar 331 (1. janúar 2015). Hinn formfagri Búlandstindur er þekktasta kennileitið í Djúpavogshreppi. Safna- og menningarhúsið Langabúð, byggt árið 1790, setur einnig mikinn svip á bæjarmynd Djúpavogs. Í Löngubúð er meðal annars safn Ríkarðs Jónssonar myndhöggvara.

Raða eftir ártali